Search

Home > Samfélagið > Óskarsverðlaunin á Youtube 2029, stefna í áfengis- og vímuvarnarmálum og endurheimt vistkerfa
Podcast: Samfélagið
Episode:

Óskarsverðlaunin á Youtube 2029, stefna í áfengis- og vímuvarnarmálum og endurheimt vistkerfa

Category: Society & Culture
Duration: 00:57:19
Publish Date: 2026-01-23 13:00:00
Description: Nýlega var tilkynnt að Óskarsverðlaunin árið 2029 verða sýnd á Youtube, vídeómiðli í eigu Google. Hvað segir það okkur um umhverfi fjölmiðla og kvikmynda að einn stærsti sjónvarpsviðburður ársins verði sýndur á miðlum tæknirisa? Við ætlum að velta þessu fyrir okkur með Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins, í upphafi þáttar. Á miðvikudaginn voru niðurstöður starfshóps um stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035 birtar til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda. Starfshópurinn hefur verið að störfum í næstum því tvö ár, enda voru verkefni hans stór; að kortleggja stöðu áfengis- og vímuefnamála á Íslandi og bregðast við stefnuleysi sem hefur ríkt í málaflokknum. Kristín I. Pálsdóttir, formaður starfshópsins, sest hjá okkur í dag og ræðir drögin. Gömul stífla í ánni Melsá í Ytri-Hraundal á Mýrum í Borgarfirði var fjarlægð við lok síðasta árs. Markmiðið var að endurheimta vatnasvæði árinnar fyrir fugla og fiska, og gera meðal annars sjóbirtingi kleift að ganga upp ána. Fuglavernd stóð fyrir verkefninu í samstarfi við Land og skóg og Hafrannsóknastofnun. Við hringjum í Jóhannes Guðbrandsson frá Hafrannsóknastofnun við lok þáttar og fáum að heyra af þessu. Tónlist úr þættinum: ASAP Rocky - Punk Rocky (Lyrics!). Svavar Knútur Kristinsson - Soundtracks. Eels - Novocaine for the soul.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6