Search

Home > Samfélagið > Fornverk í Höfnum, aðlögun að loftslagsbreytingum og sjálfstæði Grænlands og auðlindir
Podcast: Samfélagið
Episode:

Fornverk í Höfnum, aðlögun að loftslagsbreytingum og sjálfstæði Grænlands og auðlindir

Category: Society & Culture
Duration: 00:58:56
Publish Date: 2026-01-15 13:00:00
Description: Þegar Sveinn Enok Jóhannsson kom sér upp heimili í Höfnum á Reykjanesskaga vildi hann læra að hlaða og lagfæra gamlar hleðslur í garðinum sínum. Þegar það reyndist erfitt að komast á námskeið brá hann á það ráð að finna sérfræðing, halda sjálfur námskeið og bjóða öðrum að koma og læra með sér. Heyrum af þessu á eftir. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, flytur okkur pistil um miðbik þáttar. Í dag fjallar hann um hvað það kostar að aðlaga samfélagið að loftslagsbreytingum. Og í lok þáttar ætlum við að rifja upp viðtal sem var flutt hér í Samfélaginu í mars síðastliðnum. Þá, fyrir næstum því ári síðan, var Grænland í brennidepli vegna yfirlýsinga Bandaríkjaforseta um að leggja landið undir sig. Síðan þá hefur forsetinn margítrekað vilja sinn til að ná yfirráðum yfir Grænlandi, nú af meiri krafti en áður. Í þessu ljósi finnst okkur tímabært að rifja upp viðtal Arnhildar Hálfdánardóttur við Rachael Lornu Johnstone, prófessor í lögfræði og sérfræðing í þjóðarrétti við Háskólann á Akureyri og Illisimatursafik-háskóla á Grænlandi, um sjálfstæði Grænlands og auðlindir. Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir Tónlist í þættinum: Lovin' Feeling - French 79 Secret Garden - Lamomali Fer sem fer - Moses Hightower No Reason - Big Thief Pivfit Nunat - Sumé
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6