Search

Home > Samfélagið > Áramótaheit, ljótar nýbyggingar og kvenleiðtogar
Podcast: Samfélagið
Episode:

Áramótaheit, ljótar nýbyggingar og kvenleiðtogar

Category: Society & Culture
Duration: 00:59:06
Publish Date: 2026-01-02 13:00:00
Description: Heilsutengd markmið um áramót eru algeng. Til þess að markmiðin náist er gott að hafa í huga að fara rólega af stað, vera með raunhæfar væntingar um árangur og huga að skemmtanagildi hreyfingarinnar. Daníel Sæberg Hrólfsson, WorldFit-þjálfari og einkaþjálfari hjá World Class, kemur til okkar í byrjun þáttar með góðar ráðleggingar til þeirra sem ætla að taka heilsuna föstum tökum á nýja árinu. Við ætlum líka að fjalla um ljótar og fallegar nýbyggingar. Umræða um byggingar- og skipulagsmál er að þroskast og verða háværari, en stór hluti þeirrar umræðu snýr að því hvað allt er ljótt. Er eitthvað raunverulega til í því? Eða er þetta birtingarmynd nostalgíu eða fortíðarþrár? Þórhallur Bjarni Björnsson, skipulagsfræðinemi og talsmaður Arkítektúruppreisnarinnar, kíkir til okkar á eftir til að ræða þetta, sem og kosningu um fallegustu og ljótustu nýbyggingar ársins 2025. Konur eru mikilvægar nú á dögum sem leiðtogar, skrifar Ebba Margrét Magnúsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingalæknir í nýjasta hefti Læknablaðsins. Ebba Margrét segir heiminn þurfa sterka og mannlega kvenleiðtoga. Hún kíkir til okkar í lok þáttar og spjallar við okkur um leiðtoga heimsins nú í upphafi árs. Tónlist úr þættinum: Bleachers - Modern Girl Clairo - Juna BRÍET - Cowboy Killer
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6