Search

Home > Samfélagið > Menntamál, stúdentar og safn RÚV
Podcast: Samfélagið
Episode:

Menntamál, stúdentar og safn RÚV

Category: Society & Culture
Duration: 00:59:31
Publish Date: 2026-01-12 13:00:00
Description: Kerfið hefur alfarið og algjörlega brugðist börnunum okkar sagði Inga Sæland formaður Flokks fólksins og nýorðinn mennta- og barnamálaráðherra um menntakerfið fyrir helgi. Orð Ingu hafa vakið mikla umræðu um málaflokkinn og eru ekki allir sammála um hvort þau máli rétta mynd af stöðunni. Sigrún Blöndal, kennari á Egilsstöðum finnst þau ekki endurspegla það sem hún sér í vinnunni á hverjum degi og vill minna á að á heildina litið gangi börnunum vel. Við spjöllum við Sigrúnu í upphafi þáttar. Og við höldum áfram að ræða menntamálin þegar Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, kemur til okkar. Hún ætlar að fara með okkur yfir það helsta í hagsmunabaráttu stúdenta, meðal annars rannsóknir á áhrifum námslánakerfisins á stúdenta. Helga Lára Þorsteinsdóttir hefur grafið upp gimstein úr lakkplötusafni RÚV til að spila fyrir okkur. Að þessu sinni er það ódagsett viðtal Baldurs Pálmasonar við Sigríði Eiríksdóttur hjúkrunarkonu. En við byrjum á menntamálunum. Umsjón: Pétur Magnússon og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir Tónlist: Lose control - VÖK Old moon - BSÍ
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6