Search

Home > Samfélagið > Hringborð norðurslóða, 40 ára afmæli Nordjobb og götuheiti í Reykjavík
Podcast: Samfélagið
Episode:

Hringborð norðurslóða, 40 ára afmæli Nordjobb og götuheiti í Reykjavík

Category: Society & Culture
Duration: 00:58:47
Publish Date: 2025-10-16 13:00:00
Description: Aðalfundur þings Arctic Circle hófst nú í hádeginu á stóra sviðinu í Silfurbergi í Hörpu. Yfir 2.000 þátttakendur frá nær 70 löndum taka þátt og ræða þar málefni norðurslóða. Meðal þátttakenda eru ráðherrar og leiðtogar frá fjölmörgum löndum, stjórnendur vísindastofnana og alþjóðlegra fyrirtækja, auk fulltrúa loftslagssamtaka og frumbyggja á Norðurslóðum. Matthildur María Rafnsdóttir, samskiptastjóri Arctic Circle, ræðir við okkur um viðhorf stórvelda til norðurslóða. Nordjobb hefur í fjóra áratugi aðstoðað ungt fólk á Norðurlöndunum við að finna sér starf, sækja sér nýja reynslu og upplifa það að búa í öðru Norrænu landi. Elva Dögg Sigurðardóttir, verkefnastjóri Nordjobb á Íslandi, ætar að koma til okkar og segja okkur allt um Nordjobb. Umhverfis- og skipulagsráð hefur fallið frá götuheitinu Fífilsgata í Reykjavík og samþykkt tillögu götunafnanefndar um að hún verði framlenging af götunni Hlíðarfæti. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson vakti athygli á ákvörðuninni á Facebook-reikningi sínum og kallaði hana örnefnaklám. Stefán ætlar að kíkja til okkar og spjalla við okkur um götuheiti í Reykjavík. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Tónlist þáttarins: YLJA - Á rauðum sandi R.E.M - All they Way to Reno Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir - Dalvísa
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6