|
Description:
|
|
Aðgengi almennings að Heiðmörk kann að verða takmarkað í framtíðinni. Veitur stefna að því að loka grannsvæði vatnsverndar fyrir almennri bílaumferð. Í dag verður haldið málþing á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur þar sem framtíð Heiðmerkur verður rædd. Auður Kjartansdóttir, framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, kemur og ræðir við okkur um framtíð Heiðmerkur.
Síðan fáum við síðasta pakkann af umfjöllunum frá nemendum í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Í dag heyrum við umfjallanir um níkótínpúðafíkn, strákahljómsveitir og tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður.
Og að lokum kíkir Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall og segir okkur frá áhrifum Alzheimers á aðra vefi líkamans. |