Search

Home > Samfélagið > Bómullarkynslóðin rakin upp, niðurtröppunarmóttaka, Svansmerkið
Podcast: Samfélagið
Episode:

Bómullarkynslóðin rakin upp, niðurtröppunarmóttaka, Svansmerkið

Category: Society & Culture
Duration: 00:59:19
Publish Date: 2024-10-17 13:00:00
Description: Barnasprengjukynslóð eftirstríðsáranna, Kynslóðin sem var með húslykil um hálsinn og horfði á MTV, Þúsaldarkynslóðin eða þumalputtakynslóðin og Zeta-kynslóðin - um tíma hefur það tíðkast að gefa kynslóðum nafn. Í dag ætlum við að ræða kynslóðirnar og einblína sérstaklega á hugtakið bómullarkynslóð - hvað felst í því? Í pallborði um þetta verða: Steinunn Anna Sigurjónsdóttir, sálfræðingur sem lengi vann með börnum, þekkir vel til kvíða og geðrænna vandamála meðal ungmenna en hefur nú beint sjónum sínum að eldra fólki og kannski ekki síst samskiptum kynslóðanna. Anna Guðrún Steinsen, markþjálfi og tómstunda- og félagsmálafræðingur sem hefur mikið kynnt sér Z-kynslóðina svokölluðu og þjálfað ungt fólk í aldarfjórðung. Einar Lövdahl, rithöfundur af þúsaldarkynslóð sem hefur meðal annars fengist við kvíða og vanlíðan ungs fólks í verkum sínum. Við heyrum af nýjung í íslenskum heilbrigðismálum; af móttöku sem var opnuð í morgun, þar sem sérstaklega er tekið á niðurtröppun ópíóíða og annarra sterkra verkjalyfja, svefn- og róandi lyfja og fleira. Svanurinn er ekki bara umhverfismerki og það eru til fleiri svansmerktar vörur en klósettpappír og þvottaefni. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur, fræðir okkur um Svaninn í umhverfispistli dagsins, Tónlist: THE WHO - My Generation. BJARTMAR GUÐLAUGSSON - Týnda Kynslóðin.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6