Search

Home > Samfélagið > Mývatnsrannsóknir, loftslagskvíði og náttúruhugvísindi
Podcast: Samfélagið
Episode:

Mývatnsrannsóknir, loftslagskvíði og náttúruhugvísindi

Category: Society & Culture
Duration: 00:59:17
Publish Date: 2024-09-17 13:00:00
Description: Samfélagið sendir út frá alþjóðlegu Mývatnsráðstefnunni - Mývatn Conference 2024 - sem haldin er í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit. Lífríki Mývatns er einstakt og hefur verið rannsakað í þaula í hálfa öld og kannski má segja að þessi ráðstefna sé uppskeruhátíð. Hér er fjöldi vísindamanna saman kominn frá ýmsum löndum, Íslandi, Bretlandi, Finnlandi og eflaust fleirum - og í erindunum er farið vítt og breitt. Hornsíli koma meðal annars við sögu, fuglarnir, kúluskíturinn og að sjálfsögðu mýið. Við byrjum þáttinn á að ræða við Bjarna Kristófer Kristjánsson, prófessor við Háskólann á Hólum og Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatns- og eldissviðs á Hafró. Næst fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi, sem ætlar að fjalla um loftslagskvíða. Í lok þáttar færum við okkur svo inn á svið hugvísindanna, án þess að skilja náttúruvísindin alveg eftir. Við fáum til okkar Auði Aðalsteinsdóttur, forstöðumann Rannsóknarseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, og Sigurlínu Tryggvadóttur, verkefnastjóra hjá náttúruhugvísindasetrinu Huldu, til að spjalla um náttúru- og umhverfishugvísindi. Tónlist úr þættinum: ARLO PARKS & PHOEBE BRIDGERS - Pegasus. Pálmi Gunnarsson - Á áfangastað. Dina Ögon - Oas.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6