Search

Home > Samfélagið > Áhrif sumarhúsa á fugla, umhverfispistill, málfar og þernustörf um borð í Gullfossi
Podcast: Samfélagið
Episode:

Áhrif sumarhúsa á fugla, umhverfispistill, málfar og þernustörf um borð í Gullfossi

Category: Society & Culture
Duration: 00:58:33
Publish Date: 2024-04-15 13:00:00
Description: Hvaða áhrif hefur það þegar fólk byggir sér sumarbústað úti í móa, í kjörlendi lóu, spóa og jaðrakans? Hvað þá þúsundir sumarbústaða? Á undanförnum tveimur áratugum hefur sumarbústöðum á Íslandi fjölgað úr um 10 þúsund í 15 þúsund og það eru 7000 til viðbótar á skipulagi. Aldís Erna Pálsdóttir nýdoktor í líffræði hefur árum saman rannsakað hvernig mófuglar bregðast við þegar búsvæðum þeirra er raskað með þessum hætti og er aðalhöfundur fræðigreinar sem birtist á dögunum í tímaritinu Animal Conservation. Við fáum pistil frá ungum umhverfissinna á eftir. Það er Stefán Örn Snæbjörnsson sem flytur okkur hann. Málfarsmínútan verður á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur og í lok þáttar ætlum við að grúska aðeins í safni RÚV. Við rifjum upp brot úr viðtali sem Hanna G. Sigurðardóttir tók í þættinum Fyrr og nú í apríl árið 2012. Þá talaði Hanna við Rannveigu Ásgeirsdóttur sem var þerna á Gullfossi í rúman áratug, frá árinu 1962. Tónlist: Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). MUGISON - Murr Murr. HJÁLMAR - Áttu vinur augnablik. Ragnar Bjarnason, Elly Vilhjálms - Sumarauki (Gullfoss með glæstum brag).
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6