Search

Home > Samfélagið > Samtökin Akratorg, hleðsluinnviðir á Vestfjörðum, málfar og súrdeigsbakstur og samlíf fólks og örvera
Podcast: Samfélagið
Episode:

Samtökin Akratorg, hleðsluinnviðir á Vestfjörðum, málfar og súrdeigsbakstur og samlíf fólks og örvera

Category: Society & Culture
Duration: 00:59:04
Publish Date: 2024-04-12 13:00:00
Description: Miðbæjarsamtökin Akratorg á Akranesi safna núna undirskriftum í því skyni að fá bæjaryfirvöld til að skoða þann kost að láta breyta gamla húsi Landsbankans við Akratorg í ráðhús. Bjarnheiður Hallsdóttir er í stjórn þessara samtaka. Hún segir okkur nánar frá þessu máli. Svo tölum við aðeins um aðgengi að hleðslu fyrir rafbíla á Vestfjörðum. Hjá Bláma í Bolungarvík er unnið ýmsum verkefnum sem tengjast orkuskiptum í þeim landshluta og nýlega lagði Blámi mat á stöðu hleðsluinnviða á Vestfjörðum. Við ræðum við Þorstein Másson, framkvæmdastjóra Bláma. Við heyrum málfarsmínútu úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur, málfarsráðunauts, um sögnina fjölhæfu - að bera VIð kynnum okkur svo súrdeigsbrauð, fólk sem bakar það og hvernig bakararnir hugsa um og tengjast örverunum sem eiga stóran þátt í að skapa brauðið. Ragnheiður Maísól Sturludóttir, meistaranemi í þjóðfræði og forfallinn súrdeigsbakari til margra ára, er að rannsaka þetta og flutti erindi á ráðstefnu sem nú stendur yfir í Þjóðminjasafninu. Verkefni hennar er liður í stærra rannsóknarverkefni á vegum Háskóla íslands, svokölluðu öndvegisverkefni þar sem sjónum er beint að samlífi manna og örvera og hinum ýmsu birtingarmyndum þess í daglegu lífi. Tónlist: CROSBY, STILLS, NASH & YOUNG - Teach Your Children. LÓNLÍ BLÚ BOJS - Heim Í Búðardal. GRAFÍK - Bláir fuglar.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6