Search

Home > Samfélagið > Auglýsingaherferðin Blanksy, Óskar og Saxófónninn
Podcast: Samfélagið
Episode:

Auglýsingaherferðin Blanksy, Óskar og Saxófónninn

Category: Society & Culture
Duration: 00:55:00
Publish Date: 2024-04-05 13:00:00
Description: ÖBÍ, réttindasamtök öryrkja, hrundu á dögunum af stað auglýsingagjörningi þar sem þau virkjuðu áhrifavalda og sköpuðu dularfullan huldulistamann, Blanksy, sem gefið var að sök að hafa spreyað á bæði bíla og auglýsingaskilti. Í gær var hulunni svipt af öllu saman. Við ætlum að ræða hugsunina og aðferðafræðina á bak við þessa herferð og hvernig bæði áhrifavöldum og fjölmiðlum var beitt við Ölmu Ýrr Ingólfsdóttur, formann, ÖBÍ, Einar Ben forsvarsmann auglýsingastofunnar Bien og Guðmund Birki Pálmason, kírópraktor og áhrifavald. Við tölum um saxófóninn. Blásturshljóðfærið fallega sem var fundið upp um miðja 19. öld og er enn í þróun. Óskar Guðjónsson, saxófónleikari, hugsar mikið um þetta hljóðfæri og er á stöðugu ferðalagi í leitinni að besta sándinu, ég leyfi mér að sletta því þetta orð sánd þýðir í senn tónn, hljómur, hljóð og er eiginlega tilfinning. Óskar sest hjá okkur og fræðir okkur um galdurinn sem felst í saxófóninum og einkum munnstykkinu - sem er lykillinn að hinum eina sanna tóni. Tónlist: Beatles, The - I'll follow the sun. ADHD, Clay Camilla
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6