Search

Home > Samfélagið > Gasmengun frá gosinu, snjallvæðing íþrótta, málfar og dýr í geimnum
Podcast: Samfélagið
Episode:

Gasmengun frá gosinu, snjallvæðing íþrótta, málfar og dýr í geimnum

Category: Society & Culture
Duration: 00:58:03
Publish Date: 2024-03-22 13:00:00
Description: Útlit er fyrir að brennisteinsdíoxíðsmengun frá elgosinu á Reykjanesskaga nái til meginlands Evrópu, jafnvel Rússlands. Í fyrradag var starfsmaður Bláa lónsins fluttur á sjúkrahús vegna gaseitrunar og Vinnueftirlitið hefur beðið fyrirtæki á svæðinu að yfirfara áhættumat og tryggja öryggi starfsfólks, til dæmis með gasmælum. Það hefur verið töluverð mengun frá þessu gosi en þó ekki jafn mikil og bilaður mengunarmælir í Garði sýndi í fyrradag. Við ræðum mengunina frá gosinu við Þorstein Jóhannsson, sérfræðing í loftgæðamálum hjá Umhverfisstofnun. Við tölum um nýjustu tækni og íþróttir og hvernig tæknin er að breyta þjálfun og keppni. Nú eru alls kyns tæki og tól hengd á íþróttafólk til að safna gögnum um ástand þess og frammistöðu. Myndavélar eru notaðar til að greina öll smáatriði og meira að segja boltarnir í boltaíþróttum eru snjallboltar. Harald Pétursson er sérfræðingur í þessum málum. Málfarsmínúta - aukafrumlagið það. Dýraspjall með Veru Illugadóttur - geimferðir dýra í tímans rás.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6