Search

Home > Samfélagið > Svifryk, vetrarfuglatalning og neytendaspjall
Podcast: Samfélagið
Episode:

Svifryk, vetrarfuglatalning og neytendaspjall

Category: Society & Culture
Duration: 00:59:04
Publish Date: 2024-03-12 13:00:00
Description: Í gær var hægur vindur á höfuðborgarsvæðinu, snjóinn hafði tekið upp, göturnar þurrar og eftir hádegi barst tilkynning frá Reykjavíkurborg - styrkur svifryks mældist hár víða um borgina og fólk beðið að draga úr akstri einkabílsins, taka strætó . Við ætlum að ræða svifryk, orsakir þess, áhrif og mögulegar aðgerðir við Svövu S. Steinarsdóttur, heilbrigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur tekið saman niðurstöður úr árlegri vetrarfuglatalningu. Í þessari talningu sem fór fram í janúar, sáust hátt í 170 þúsund fuglar af meira en 80 tegundum. Sumir fuglar koma fyrir í tugþúsundatali en aðrir bara einu sinni - eins og grákráka og blessuð heiðlóan. Svenja Auhage fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun hefur umsjón með þessum rannsóknum og segir okkur frá þeim. Neytendaspjall við Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna. Við ætlum að ræða fjallabaksleið sem fólk virðist stundum fara þegar það vill fá bætur vegna þess að flugferð sem það átti bókaða var seinkað eða henni aflýst. Tónlist: DAMIEN RICE - Volcano (Radio Edit 2004). Rocky trail - Kings of convenience.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6