Search

Home > Samfélagið > Heimsókn í flokkunarstöð Sorpu, hvað er úrvalsmjólk og hvernig er hún framleidd, málfar og vísindaspjall
Podcast: Samfélagið
Episode:

Heimsókn í flokkunarstöð Sorpu, hvað er úrvalsmjólk og hvernig er hún framleidd, málfar og vísindaspjall

Category: Society & Culture
Duration: 00:55:00
Publish Date: 2024-03-06 13:00:00
Description: Frauðplastsdemantar, villt dýr og ást íslendinga á VHS-spólum koma við sögu í Samfélaginu í dag. Við fjöllum á næstunni um plast og plastumbúðir - og ætlum að hafa spakmælið: Í upphafi skyldi endinn skoða, sem leiðarljós. Vegferðin byrjar því í Mótttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi. Sjö mjólkurframleiðendur í Þingeyjarsveit náðu þeim frábæra árangri að framleiða og fá greitt fyrir úrvalsmjólk alla mánuði ársins 2023. Frá þessu er sagt í umfjöllun á vef Þingeyjarsveitar. Við í Samfélaginu urðum forvitin um þessa úrvalsmjólk og hvernig hún er frábrugðin annarri mjólk sem íslenskir kúabændur framleiða í milljónum lítra á hverju ári. Samvinnufélagið Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Og veitir viðurkenningar þeim sem ná að framleiða úrvalsmjólk alla mánuði ársins. Jóhannes Hreiðar Símonarson framkvæmdastjóri Auðhumlu segir okkur allt um úrvalsmjólk, gæði mjólkur og hvernig henni er safnað frá kúabúum landsins. Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í sitt vikulega vísindaspjall.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6