|
Description:
|
|
Um helgina fór fram óvenjulegt mót, lausnamót gegn textílsóun sem bar yfirskriftina þráðaþon. Aðsóknin fór langt fram úr væntingum mótshaldara, fjöldi teyma lagði nótt við dag í þann rúma sólarhring sem mótið stóð og þróaði hugmyndir sem eiga að taka á textílvanda heimsins, eða í það minnsta einhverjum hluta hans. Aðstandendur þráðaþonsins koma til okkar hér rétt á eftir og með í för fulltrúi úr sigurteyminu, Textílendurvinnslunni, sem ætlar sér stóra hluti hér á Íslandi. Við ætlum svo að ræða við Gísla Pálsson mannfræðing um Neanderdalsmenn. En Gísli skrifaði grein í Náttúrufræðinginn sem ber titilinn ?Er einhver Neanderdalsmaður hér inni?? Málfarsmínútan verður á sínum stað og Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kemur til okkar með gamla upptöku úr safninu. Lakkplötuviðtal við Júlíus Geirmundsson, bónda í Fljótavík. |