Search

Home > Samfélagið > Steypireyður, Jæja og nýyrði
Podcast: Samfélagið
Episode:

Steypireyður, Jæja og nýyrði

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-11-28 13:00:00
Description: Við ætlum að tala um stærsta dýr jarðar í Samfélaginu í dag, það er vitaskuld steypireyður. Nú er ýmislegt sem bendir til þess að sú tegund sé sumstaðar að ná sér á nokkurt strik eftir djúpa lægð vegna ofveiði á árum áður. Ný rannsókn á Steypireyðum við Seychelles eyjar í Indlandshafi bendir til þess að þar sé þeim að fjölga. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur ætlar að segja okkur allt um steypireyðar. Svo kemur til okkar doktorsnemi í umhverfisfræði, Guðmundur Steingrímsson en í dag birtist í spilara RÚV þáttaröðin Jæja, sem hann hefur gert um umhverfismál. Guðmundur er líka að pakka fyrir ferð á loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna - COP28 í Dubai. Hann segir okkur frá öllu þessu. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kemur svo til okkar í lok þáttar í málfarsspjall. Við ætlum að velta fyrir okkur spurningunni um hver, ef einhver, ákveður hvaða orð við notum - í framhaldi af samkeppni um hýryrði sem Samtökin ?78 stóðu fyrir en niðurstöðurnar voru kynntar á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember síðastliðinn.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6