Search

Home > Samfélagið > Fjarskiptatruflanir, dagbækur Sveins og Rauði krossinn tilnefndur
Podcast: Samfélagið
Episode:

Fjarskiptatruflanir, dagbækur Sveins og Rauði krossinn tilnefndur

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-09-05 13:00:00
Description: Í gær bárust fréttir af því að ekkert símasamband væri sumstaðar í Eddu, húsi íslenskunnar. Ástæðan er sögð koparklæðning utan á húsinu sem hindrar að fjarskiptamerki berist inn í húsið. Við ætlum að forvitnast um þetta, hvað veldur og hvað annað getur valdið því að fjarskipti truflist. Þorleifur Jónasson fjarskiptatæknifræðingur og sviðsstjóri hjá Fjarskiptastofu sest hjá okkur eftir smástund. Við kynnum okkur dagbækur Sveins Þórarinssonar, amtskrifara á Akureyri. Hann hélt dagbók frá því hann var unglingur fram á dánardag árið 1869 og þykja bækurnar einstakur aldarspegill. Rithöfundurinn Jón Sveinsson, Nonni, var sonur Sveins. Una Haraldsdóttir, sagnfræðinemi, hefur rannsakað dagbækur Sveins í sumar og unnið að því að koma þeim yfir á stafrænt form. Rauði krossinn á Íslandi er tilnefndur til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Í ár beinir dómnefndin sjónum sínum að þeim miklu áskorunum sem fólgnar eru í framleiðslu og notkun á textíl. Árið 2021 söfnuðust tæplega 2300 tonn af textílefnum í gegnum fatasöfnunarkerfi Rauða krossins og þetta viðamikla verkefni er semsagt eitt af sjö verkefnum á Norðurlöndunum sem er tilnefnt. Guðbjörg Rut Pálmadóttir hjá Rauða krossinum segir okkur frá þessu á eftir.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6