|
Description:
|
|
Íslandshótel reka 17 hótel víða um land. Þar af 7 í höfuðborginni. Nýlega var sagt frá því að hótelin sjö í Reykjavík væru komin með umhverfisvottun, auk 6 hótela á landsbyggðinni. Vottunin er kölluð ?Green Key? og er alþjóðlega viðurkennt vottunarkerfi í ferðaþjónustu. Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela segir okkur hvað felst í þessu. Við kynnum okkur Úkraínuverkefni Háskóla Íslands en fjöldi fólks kemur að því að fjalla um Úkraínu frá ýmsum hliðum og halda ýmsa viðburði. Ræðum við Val Gunnarsson og Helgu Brekkan. Nú er runninn upp tími matsveppa og rétti tíminn til að fylla körfurnar og safna forða til vetrarins. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur, gefur góð ráð um sveppatínslu fyrir byrjendur. |