Search

Home > Samfélagið > Stýrivextir, rafskútuslys og geitungar
Podcast: Samfélagið
Episode:

Stýrivextir, rafskútuslys og geitungar

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-08-25 13:00:00
Description: Stýrivextir voru í vikunni hækkaðir í fjórtánda skipti í röð og fólk er farið að finna fyrir háu vaxtastigi og verðbólgu. Við ræðum við Kristínu Eir Helgadóttur ráðgjafa hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, sem í ár hefur aðstoðað áttatíu manns í skuldavanda og horfir sjálf á afborganirnar af húsnæðisláninu hækka og hækka. Frásögn konu á Akureyri sem lenti í slysi á rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis hefur vakið nokkra athygli. Konan sagði frá slysinu á Facebook og þar kom fram að hún reyndist höfuðkúpubrotin, kinnbeinsbrotin og kjálkabrotin eftir skoðun á sjúkrahúsi. Hún sagðist skammast sín fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun og vonast til að enginn þurfi að lenda í því sama. En er eitthvað hægt að gera til að koma í veg fyrir að fólk geti leigt sér slík hjól undir áhrifum? Eða takmarka virkni hjólanna þannig að minni líkur séu á alvarlegum slysum? Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Hopp ætlar að ræða það við okkur á eftir. Svo fáum við dýraspjall í lok þáttar. Á þessum árstíma verða geitungar oft ágengari en hvers vegna? Og hafa þeir einhvern tilgang í vistkerfinu? Ragnhildur Guðmundsdóttir, líffræðingur og sérfræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands ræðir við okkur um þá.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6