|
Description:
|
|
Skólabyrjun og tilfinningar sem henni tengjast. Samfélagið fór í heimsókn í Lindaskóla í Kópavogi og ræddi við Nönnu Hlín Skúladóttur kennara og Ásu Margréti Sigurjónsdóttur skólasálfræðing. Það hefur lengi tíðkast að vista ungt fólk með fötlun á hjúkrunarheimilum og Atli Þór Kristinsson, sagnfræðinemi, er að skoða þessa tilhneigingu sem teygir sig aftur til þriðja áratugarins þegar fyrstu heimilin fyrir aldraða voru stofnuð. Stefán Gíslason flytur umhverfispistil um áhyggjur og andvaraleysi í loftslagsmálum. |