|
Description:
|
|
Það er ekkert tilviljanakennt við vegagerð, eins og komast má að þegar rannsóknarstofa Vegagerðarinnar er heimsótt - þar eru gerðar að því er virðist endalausar prófanir á steinefnum, allt gert til að örugglega verði settur saman hinn fullkomni vegur sem standist álag umferðar og veðurs. Jarðfræðingurinn Erla María Hauksdóttir tók á móti Samfélaginu sýndi græjurnar og grjótið og vísindin að baki. Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn var í gær og ýmislegt gert í tilefni af honum til að minna á mikilvægi þess að gefa blóð og hvetja nýja blóðgjafa til að drífa sig í blóðbankann. Við ætlum að ræða blóðgjöf og blóðgjafa við formann blóðgjafafélags Íslands, Davíð Stefán Guðmundsson Við fáum svo í lok þáttar umhverfispistil frá Stefáni Gíslasyni. |