Search

Home > Samfélagið > Unnin matvæli, málstol, málfar og roðskór fortíðar
Podcast: Samfélagið
Episode:

Unnin matvæli, málstol, málfar og roðskór fortíðar

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-06-12 13:00:00
Description: Við ætlum að kynna okkur það sem upp á ensku hefur verið kallað ?ultra processed foods? - það eru mjög mikið unnin matvæli sem innihalda allskyns efni sem vissulega eru æt, en flokkast kannski ekki endilega sem matur í eiginlegum skilningi. Undanfarið hafa komið í ljós ýmsar vísbendingar um að þessi meðferð á matnum okkar sé heilsuspillandi og í nýrri bók eftir breska lækninn Chris Van Tulleken eru nýjustu rannsóknir um matvæli af þessu tagi teknar saman og því lýst hvernig risafyrirtæki markaðssetja vörur sem geymast lengi, eru bragðgóðar og allt að því ávanabindandi. Við ræðum þetta við Bryndísi Evu Birgisdóttur, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Málstol er máltruflun sem getur haft áhrif á máltjáningu og málskilning, lestur og skrift. Talmeinafræðingar geta aðstoðað þau sem þjást af málstoli sem er talið að séu yfir 100 á ári á Íslandi - og nú ætla talmeinafræðingar allsstaðar að úr heiminum að koma saman á næstunni og rýna í málstol meðferðir við því og rannsóknir. Við ræðum við Ester Sighvatsdóttur yfirtalmeinafræðing á Landspítalanum. Við heyrum eina málfarsmínútu og fáum svo heimsókn frá safni RÚV. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri ætlar að leyfa okkur að heyra áhugaverða upptöku úr safninu.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6