|
Description:
|
|
Byrjum á að ræða um afar aðkallandi mál við Pétur Henry Petersen prófessor í taugavísindum, nefnilega hvort heimsfaraldur af völdum sveppa sem breyta mannfólki í uppvakninga geti gerst í alvörunni. Í sjónvarpsþáttunum Last of us sem njóta gríðarlegra vinsælda geysar slíkur sveppafaraldur og hefur lagt heiminn í rúst - og þessir uppvakningasveppir: þeir eru til í alvörunni! Hafa hingað til bara lagst á skordýr - EN erum við næst?! Við verðum líka beint frá Geldinganesi en þar var Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra ásamt forstjóra Umhverfisstofnunar að opna nýja vefsíðu, strandhreinsun.is sem eins og nafnið bendir til snýst um hreinsun á strandlengjunni. Þarna verður t.d. hægt að taka frá svæði til að hreinsa, fyrir einstaklinga, stofnanir og félagasamtök. Og þetta er allt saman hluti af átaki sem umhverfisráðuneyti réðist í árið 2021. Rætt við Guðlaug og Katrínu Sóley Bjarnadóttur sérfræðing hjá Umhverfisstofnun. Málfarsmínúta. Svo er dýraspjallið á sínum stað, Halldór Pálmar Halldórsson er náttúruvísindamaðurinn sem fær að sitja fyrir svörum í dag. Halldór er sérfræðingur í kræklingi - sem flestir vita að er gómsætur, en það er svo margt fleira algerlega magnað við þessa lífveru - og Halldór segir okkur allt um það. |