Search

Home > Samfélagið > Tunnurnar gerðar klárar, viðarvinnsla, málfar og heilinn afhjúpaður
Podcast: Samfélagið
Episode:

Tunnurnar gerðar klárar, viðarvinnsla, málfar og heilinn afhjúpaður

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-05-10 13:00:00
Description: Matarleifar, plast, pappír og blandaður úrgangur. Þetta eru flokkarnir fjórir sem allt sorp á flokkast í og verður tekið upp á höfuðborgarsvæðinu og suðurnesjum nú á næstunni - aðrir landshlutar sumir löngu byrjaðir á þessu auðvitað. Og þetta mun þýða að við flest heimili bætist í það minnsta ein tunna - sem er jafnvel tvískipt - útfærslurnar fara auðvitað eftir umfangi úrgangs og fjölda íbúa - og svo kemur karfa með bréfpoka inn til okkar þar sem í fara matarleifar. Við fórum í morgun að skoða nýju tunnurnar, það er verið að setja þær saman og merkja vandlega á risastóru vinnusvæði á Gufunesi - ekkert sem jafnast á við ónotaðar ruslatunnur - en við skoðuðum samt hvernig á að nota þær með Guðmundi B. Friðrikssyni verkefnisstjóra hjá Reykjavíkurborg. Við heimsækjum Skógræktarfélag Reykjavíkur í Heiðmörk. Þar er viðarvinnsla í fullum gangi enda töluvert af timbri sem fellur til vegna grisjunar. Þar eru framleidd viðarborð úr ýmsum trjátegundum, eldiviður, viðarkurl og fleira. Auður Elva Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur tekur á móti okkur og segir frá viðarvinnslunni og ræktunarstarfinu. Málfarsmínútan er á sínum stað og svo er Vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur í lok þáttar.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6