Search

Home > Samfélagið > Katla, bráðamóttaka Landspítalans og páfagaukar hringjast á
Podcast: Samfélagið
Episode:

Katla, bráðamóttaka Landspítalans og páfagaukar hringjast á

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-05-05 13:00:00
Description: Ríkislögreglustjóri og Lögreglustjórinn á Suðurlandi lýstu í gær yfir óvissustigi vegna jarðskjálfta í Mýrdalsjökli. Það var gert í kjölfar jarðskjálftahrinu í öskju Kötlu þar sem þrír skjálftar mældust yfir 4 að stærð. Rólegt hefur verið síðan síðdegis í gær og nú fyrir hádegi kom fram á vef Veðurstofunnar að virknin í Kötluöskju teljist nú til eðlilegrar bakgrunnsvirkni eldstöðvarinnar. En óvissustigið er enn og ástæða til að fylgjast náið með og kannski dusta rykið af viðbragðsáætlunum. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra er aðalmaðurinn í þessu - eins og svo mörgu öðru. Hann ætlar að ræða við okkur um viðbragð, áætlanir, sviðsmyndir og eftirlit vegna hræringa í og við Kötlu. Af bráðamóttöku Landspítalans berast oft vondar og erfiðar fréttir; langir biðtímar, skortur á starfsfólki, veikt fólk liggur á göngunum, það er fráflæðivandi og aðstöðuleysi. Fólkið sem vinnur á þessari deild er í framlínusveit spítalans og veit aldrei hvað vinnudagurinn ber í skauti sér. Hvers vegna vill það vera þarna? Hvernig er bráðamóttakan sem vinnustaður? Samfélagið hitti sérnámslækninn Unni Ósk Stefánsdóttur og náði að ræða við hana þó það væri ys og þys, hávaði og bíb og töluverðar líkur á að sjá blóð. Vera Illugadóttir ætlar svo að koma í heimsókn til okkar með dýrasögur eins og henni einni er lagið.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6