Search

Home > Samfélagið > Landspítali rís, náttúrulæsi og málstefna RÚV
Podcast: Samfélagið
Episode:

Landspítali rís, náttúrulæsi og málstefna RÚV

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-05-02 13:00:00
Description: Við tökum stöðuna á byggingu nýs Landspítala. Það er risastórt verkefni sem hefur lengi verið í gangi og framkvæmdir eru nú á fullu. Það sem er núna mest áberandi er svokallaður meðferðarkjarni sem hefur risið nokkuð hratt undanfarið en nýlega var sagt frá því að magn þeirrar steypu sem notuð er í hann væri komið yfir 40 þúsund rúmmetra. Sem okkur skilst að sé dágott. Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri verkefnisins um Nýjan Landspítala fer yfir málið með okkur. Við ætlum svo að ræða um náttúrlæsi Íslendinga. Það er líklega fáum öðrum þjóðum eins mikilvægt að vera læs á náttúru sína og umhverfi, í landi hættulegra veðra, eldgosa, jarðskjálfta og skriðufalla. En mögulega hefur náttúrulæsi og skilningi farið aftur. Hvernig birtist það og hvað er hægt að gera við því? Við ræðum við tvo sérfræðinga, annars vegar Hauk Arason dósent í eðlisfræði og náttúrufræðimenntun við Háskóla íslands og hins vegar Hauk Hauksson samskiptastjóra Veðurstofunnar. Svo kemur Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins til okkar í lok þáttar. Hún segir okkur frá málstefnu RÚV sem er verið að endurskoða.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6