Search

Home > Samfélagið > Netvarnir, kolefnisbinding, málfar og dýraspjall
Podcast: Samfélagið
Episode:

Netvarnir, kolefnisbinding, málfar og dýraspjall

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-04-28 13:00:00
Description: Undirbúningur fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins fer að ná hámarki, en sá stóri fundur fer fram 16.-17. maí í Hörpu. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands eru gestgjafar fundarins enda gegnir Ísland formennsku í Evrópuráðinu. Það er mikil og ströng öryggisgæsla vegna fundarins og eitt sem hefur komið fram í fjölmiðlum undanfarið er auknar líkur á hvers kyns netárásum. Og þá borgar sig að vera undirbúinn. Guðmundur Arnar Sigmundsson er forstöðumaður Cert-ís, netöryggissveitar Fjarskiptastofu. Við ætlum að velta fyrir okkur kolefnisbindingu og kolefnisjöfnun og hverju það a að skila. Það er töluvert deilt um þessi mál, þau tengjast mikið inn í umræður um skógrækt og landgræðslu og hvaða stefnu Íslendingar eiga að taka í þeim efnum. Árni Finnsson formaður náttúruverndarsamtaka Íslands og einn stofnfélaga VÍN - sem eru vinir íslenskrar náttúru og Hreinn Óskarsson hjá skógræktinni, skógfræðingur og sviðsstjóri þjóðskóga líta þessi mál ólíkum augum. Við tölum við þá. Málfarsmínútan verður á sínum stað og sömuleiðis dýraspjallið. Að þessu sinni ætlum við að ræða við Vigdísi Freyju Helmútsdóttur plöntuvistfræðing sem sinnir afar forvitnilegum rannsóknum á því hvernig plöntum líður í hlýnandi heimi.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6