|
Description:
|
|
VIð ætlum að rýna í rannsókn sem skoðar upplifanir og líðan Seyðfirðinga í kjölfar aurskriðanna sem þar urðu fyrir þremur árum. Mikið áfall fyrir bæinn og íbúa hans, ótti, ringulreið og óvissa gripu um sig - en það fannst líka einstakur baráttuhugur, samstaða, seigla og kærleikur. Við ræðum við Tinnu Halldórsdóttur yfirverkefnastjóra og Ernu Rakel Baldvinsdóttur verkefnastjóra, báðar hjá Austurbrú. Samskip hafa samið um að láta smíða fyrir sig tvö vetnisknúin skip til siglinga á styttri leiðum í Evrópu. Við ætlum að forvitnast um þetta og skref í átt að orkuskiptum í skipaflutningum og ræða við Þórunni Ingu Ingjaldsdóttur sem er forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa. Málfarsmínútan verður á sínum stað og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV með eitthvað bitastætt til okkar úr safninu. |