|
Description:
|
|
Auður Aðalsteinsdóttir, doktor í bókmenntafræði og ritstjóri við Háskólaútgáfuna og Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, heimspekingur og dósent við listkennsludeild Listaháskóla Íslands flytja báðar erindi á málþingi með yfirskriftinni Náttúrusýn á 21 öldinni: fjölbreytni samfélags og náttúru. Málþingið er liður í Hátíð líffræðilegrar fjölbreytni, viðburðaröð BIODICE árið 2023, sem miðar að því að miðla sýn og þekkingu á fjölbreytni náttúru og menningar til samfélagsins á upplýsandi hátt. Rætt við Auði og Guðbjörgu um tengsl listar, umhverfis, náttúru og upplifana. Svo tölum við um malbik. Heimsækjum Malbikstöðina á Esjumelum en þar á bæ segjast menn stefna að því að framleiða umhverfisvænasta malbik í heimi. Vilhjálmur Þór Matthíasson framkvæmdastjóri og eigandi Malbikstöðvarinnar tekur á móti okkur þar. Ingi Agnarsson kóngulóarsérfræðingur er gestur okkar dýraspjallinu. |