|
Description:
|
|
Um 700 kindur voru aflífaðar í Vestur-Húnavatnssýslu eftir að upp kom riðusmit. Aðgerðir vegna þessa dapurlega máls hafa verið afar umfangsmiklar - og framundan er enn meiri vinna. Það er ekki hlaupið að því að farga svona mörgum dýrahræum svo vel og rétt sé. VIð ætlum að tala við Höllu Einarsdóttur teymisstjóra hjá Umhverfisstofnun en þau eru ein af þeim stofnunum sem komu að málum, sérstaklega förguninni, og forvitnast um hvernig á að gera þetta - og hvernig ekki. Við tölum um umferðaröryggi í þætti dagsins. Sérstaklega þegar kemur að notkun farsíma í umferðinni - sem er auðvitað stórhættuleg. Það vitum við öll. En engu að síður er mjög algengt að fólk geti ekki látið símann í friði undir stýri. Og kannski er einhver hlustandi Samfélagsins einmitt að fikta við símann undir stýri núna og ætti þá að hætta því snarlega. En á sama tíma og tæknin er að stefna fólki í hættu undir stýri og á vegum landsins hefur öryggi í bílum aukist mjög mikið, t.d. með aukinni sjálfvirkni og þar kemur tæknin líka til skjalanna. Við tölum við sérfræðing í forvörnum um þessi mál. (Sigrún A. Þorsteinsdóttir) Málfarsmínúta verður á sínum stað og svo kemur Edda Olgudóttir í sitt reglubundna vísindaspjall. |