|
Description:
|
|
Við ætlum við að fá að vita allt um stórmerkilegt verkfæri, sem kallast jöklastika. Í hvað var jöklastikan notuð? Við ræðum við mann sem er eiginlega óvart helsti sérfræðingur heimsins í þessum dularfulla og eldgamla hlut, Arngrímur Borgþórsson heitir hann. Við ætlum, eins og við höfum gert reglulega undanfarið, að kynnast starfsemi Þjóðskjalasafns Íslands. Að þessu sinni ætlar Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður að fræða okkur um einkaskjalasöfn og skoða með okkur áhugaverð skjöl. Vorið er komið, að minnsta kosti á næsta leiti, og þá sér maður að sífellt fleiri fara að þvo bílana sína af miklum móð - en það er ekki sama hvernig það er gert - og hversu oft - Umhverfisstofnun hefur í það minnsta ákveðnar skoðanir á þessu og við ætlum að heyra í þeim í þættinum Svo fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi. |