|
Description:
|
|
Við ætlum að forvitnast um jarðgangagerð í tilefni af því að innviðaráðherra ætlar að skipa starfshóp sem á að kanna möguleikana á gerð jarðganga til Vestmannaeyja. Freyr Pálsson sérfræðingur Vegagerðarinnar í jarðgangagerð ætlar að spjalla við okkur um jarðgöng á eftir. Við ræðum líka við Láru Jóhannsdóttur prófessor í umhverfis og auðlindafræði við viðskiptafræðideild háskóla Íslands um rannsókn sem hún og fleiri gerðu á áhrifum covid 19 faraldursins á vestfjörðum. Covid geysaði þar eins og annars staðar, óvenjulega skæð veira á því svæði um tíma, en þessi fámennu samfélög sem þar eru tóku áskorunum og erfiðleikunum á eftirtektarverðan hátt leiddi rannsóknin í ljós, seigla og aðgangur að náttúru urðu að lykilatriðum til að koma sér yfir þennan erfiða hjalla - fræðumst meira um það hér á eftir Svo er umhverfispistill, og það er Inga Huld Ármann hjá ungum umhverfissinnum sem flytur okkur hann. |