|
Description:
|
|
Í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi kom fram hjá ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar að Ísland stæði verr að vígi en aðrar þjóðir þegar kemur að netöryggi og að það gæti ógnað þjóðaröryggi. Aðstoðaryfirlögregluþjónn á greiningardeild ríkislögreglustjóra sagði í sömu frétt að yfirvöld yrðu að vera viðbúin netárás á mikilvæga innviði. Guðmundur Arnar Sigmundsson er forstöðumaður netöryggissveitar CERT-IS en sú sveit er hluti af viðbragði yfirvalda við öryggisógn á netinu. Hann ræðir þessi mál við okkur. Við kynnum okkur róbótavæðingu í Samfélaginu í dag. Við könnumst flest við róbótafjós, en færri hafa kannski heyrt um róbótagróðrarstöð. En nú verður breyting þar á. Við skruppum í heimsókn í gróðrastöðina Sólskóga sem er staðsett í Kjarnaskógi við Akureyri, en þau munu bráðlega taka í notkun róbót sem mun gjörbreyta starfseminni. Við forvitnuðumst um þessar breytingar hjá Katrínu Ásgrímsdóttur, framkvæmdastjóra Sólskóga. Málfarsmínútan er á sínum stað og við fáum líka heimsókn frá Þjóðskjalasafni Íslands en undanfarið höfum við reglulega fjallað um starfsemina þar og fengið að skoða safnkostinn. Að þessu sinni kemur til okkar Unnar Ingvarsson, fagstjóri stafrænnar endurgerðar. Hann ætlar að segja okkur frá því hvernig skjöl eru gerð stafræn, meðal annars til birtingar á vefnum og sýna okkur áhugaverð skjöl sem þar er að finna. |