|
Description:
|
|
Við forvitnumst um hvernig námi í lögreglufræðum er háttað hér á landi. Hver eru inntökuskilyrðin, hvað eru margir nemendur teknir inn, hvernig eru kynjahlutföllin og hvar og hvernig fer kennsla fram? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem við í Samfélaginu munum leita svara við í dag. Og sú sem svarar þessum spurningum okkar er Eyrún Eyþórsdóttir, brautarstjóri í lögreglufræðum. Svo fáum við að vita allt um nýja Ölfusárbrú sem gert er ráð fyrir að reisa norður af Selfossi innan skamms. Brúin er hluti af miklum vegabótum sem staðið hafa yfir á Suðurlandsvegi undanfarið og verður heilmikið mannvirki. Við tölum við Guðmund Val Guðmundsson sem stjórnar þessu verkefni fyrir Vegagerðina. Að lokum endurflytjum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi um fagið umhverfissálfræði. |