Search

Home > Samfélagið > Endurkoma í íþróttum, Dýrfinna, málfar og sykursýki
Podcast: Samfélagið
Episode:

Endurkoma í íþróttum, Dýrfinna, málfar og sykursýki

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-03-08 13:00:00
Description: Hingað til okkar í gær kom Guðmundur Stephensen borðtennisleikari og goðsögn, sem gerði sér lítið fyrir og vann Íslandsmeistaratitillinn aftur, eftir að hafa ekki spilað í áratug. Mögnuð endurkoma í íþrótt, og við ætlum að rýna í endurkomur í íþróttum almennt með háskólakennara í íþróttafræðideildinni í Háskólanum í Reykjavík, Sveini Þorgeirssyni. Eru endurkomur algengar, hvað hefur helst áhrif; líkamlegt atgervi eða andlegt - eða kannski bara eðli íþróttarinnar sjálfrar? Dýrfinna er félagsskapur sem sérhæfir sig í leit og björgun gæludýra. Mest er um að leitað sé að hundum sem hafa af einhverjum ástæðum sloppið frá eigendum sínum og ekki fundist. En oft finnast þeir reyndar, með hjálp sjálfboðaliða á vegum Dýrfinnu. Anna Margrét Áslaugardóttir er formaður Dýrfinnu. Heyrum í henni. Málfarsmínúta er á sinum stað, og við ætlum líka að fræðast aðeins um endurnýtingu á óvæntum hlutum sem falla til á heimilinu - en leikskólakennarar standa öðrum framar þegar kemur að því að endurnýta rusl - og við ræðum við eina á eftir, Mariu Ösp Ómarsdóttur. Svo er vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, hún ætlar að ræða um briseyja ígræðslu til að lækna sykursýki.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6