|
Description:
|
|
Verðbólga mælist nú 10,2 prósent og hefur ekki verið svo mikil síðan haustið 2009. Þetta er umfram það sem greiningaraðilar, sem svo eru kallaðir, höfðu spáð og það virðist ætla að verða þrautin þyngri að hemja verðbólguna, sem er auðvitað mikill skaðvaldur. Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka og því einn þessara greiningaraðila - hann sest hér eftir augnablik. VIð ræðum við verkefnastjóra gegn ofbeldi hjá ríkislögreglustjóra, Eygló Harðardóttur hér á eftir - en meðferð þessara mála, ekki hvað síst þeirra sem tengjast kynbundnu ofbeldi og kynferðisofbeldi, hefur tekið töluverðum breytingum síðustu misserin. Á hvaða hátt og með hvaða árangri? Að hverju er stefnt? Eygló fer yfir þetta með okkur. Svo er Páll Líndal umhverfissálfræðingur með sinn pistil í lok þáttar. |