|
Description:
|
|
Við ætlum að forvitnast um sprotafyrirtækið So Green sem framleiðir og selur kolefniseiningar sem miða að því að styðja við menntun stúlkna í þróunarlöndum. Þetta er kolefnisjöfnun - en þarna eru ekki gróðursett tré eða mokað í skurði, heldur er menntun stúlkna tryggð. Guðný Nielsen stofnandi So Green kemur til okkar. Við ræðum svo við Finn Friðriksson dósent við Háskólann á Akureyri sem við annan mann er að hefja rannsókn á framburði fólks á Íslandi, hvernig einstaklingar breyta framburði sínum og viðhorf til ýmissa svæðisbundinna málýskna. Það er ýmislegt sem bendir til þess að raddaði framburðurinn sé að hverfa, sá vestfirski er nánast alveg horfinn - en skaftfellski einhljóða framburðurinn er að styrkja sig. Málfarsmínútan er á sínum stað og við heimsækjum Þjóðskjalasafnið og ræðum við Heiðar Lind Hansson skjalavörð og fáum að skoða merkilegt skjal sem tengist rokksögu Íslands. |