|
Description:
|
|
Við ætlum að huga að rafbílum, sérstaklega rafjeppum. Rafbílar njóta mikilla vinsælda hérlendis, en fyrir þjóð sem ferðast gjarnan um á fjöllum í vetrarfærð þykja smábílar ekki vera nóg. Hvaða rafjeppar eru komnir fram, hvernig virka þeir og hvað eru bílaframleiðendur og bílaspekulantar að veðja á? Jóhannes Reykdal ritstjóri og blaðamaður á Bílablogginu kíkir til okkar. Við heimsækjum vatnsbólin í Heiðmörk. Setjumst upp í lekaprófaðan bíl og fáum að skoða það sem leynist handan rammgerðra girðinganna sem loka af það allraheilagasta á vatnsverndarsvæðinu; sjálfa Gvendarbrunna. Sigrún Tómasdóttir jarðfræðingur hjá Orkuveitunni tekur á móti okkur og fræðir okkur um vatn og mikilvægi þess að passa vel upp á það. Við ræðum svo um neytendamál í lok þáttar, Brynhildur Pétursdóttir ritstjóri neytendablaðsins rýnir í bambus sem er gjarnan auglýstur sem umhverfisvænni kostur þegar kemur að textíl og fötum - jafnvel sem tannburstar. En er bambusinn grænni, betri, umhverfisvænni? -Það er málum blandið. |