|
Description:
|
|
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF hefur mikið verið í fréttum undanfarið vegna fyrirætlana um að selja hana. Þær hugmyndir mættu mikilli andstöðu úr ýmsum áttum og nú virðast þær hafa verið settar á ís - eða hætt við þær. Við heimsækjum flugskýli Gæslunnar á eftir og skoðum þessa umtöluðu flugvél. Rætt við VIggó Sigurðsson stýrimaður hjá Gæslunni. Við ræðum líka útrýmingu mannkyns. Er hún yfirvofandi? Hvernig þá og getum við komið í veg fyrir slíkt? Stórt er spurt. Við ræðum við Hlyn Orra Stefánsson heimspeking við Stokkhólmsháskóla sem vinnur innan nýrrar rannsóknarstofnanar í Svíþjóð sem skoðar hamfaraáhættur og kynnir stjórnvöldum heimsins hvernig þau geti brugðist við. Minnir þau á þörf þess að hætta að hugsa í kjörtímabilum og fara að spá í árhundruðum. Það eru tæknimilljarðarmæringar sem fjármagna þessar rannsóknir, hvers vegna? Málfarsmínuta um skrípi. Safnaspjall með safnstjóra RÚV, Helgu Láru Þorsteinsdóttur: Viðtal sem Margrét Indriðadóttir tók við dr. Sigurð Þórarinsson jarðfræðing í apríl árið 1949 um Náttúrugripasafnið í Reykjavík. |