|
Description:
|
|
Elínóra Inga Sigurðardóttir, formaður KVENN, félags kvenna í nýsköpun kemur til okkar og ræðir meðal annars um alþjóðlega ráðstefnu sem ber yfirskriftina Women for solutions and sustainability sem haldin verður hér á landi í haust og nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Gufuborinn Dofri hefur verið sagður verðmætasta vinnuvél Íslandssögunnar. Hann var notaður til að bora eftir heitu vatni um allar trissur hér á landi frá árinu 1957 til 1991, frá Nóatúni í Reykjavík að Kröflu. Nú er verið að gera borinn upp svo hægt verði að sýna hann almenningi við Elliðaárstöð. Samfélagið fékk að skoða borinn þar sem verið er að gera hann upp í VHE vélsmiðjunni í Hafnarfirði og ræddi við Bjarna Bjarnason forstjóra OR um sögu borsins. Anna Sigríður Þráinsdóttir bauð upp á málfarsmínútu. Edda Olgudóttir sagði frá rannsókn á áhrifum skjátíma og hreyfingar á börn. |