|
Description:
|
|
Við tölum um fugla í Samfélagi dagsins. Nú er hart í ári, mikið frost víða löngum stundum og maður ímyndar sér að lífsbaráttan sé hörð hjá smávinum okkar fuglunum. Kristinn Haukur Skarphéðinsson dýravistfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands ætlar að ræða við okkur um lífsbaráttu fugla á landi og sjó um hávetur á norðurslóðum. Katrín Ólafsdóttir sem nýverið varði doktorsritgerð sína í menntavísindum þar sem hún rannsakaði hvernig og hversvegna ofbeldi þrífst í nánum samböndum kemur til okkar. Hún byggði rannsóknina meðalan annars upp á viðtölum við bæði þolendur og gerendur ofbeldis - sem og hópviðtölum við ungt fólk um sambönd og samþykki. Við höfum stundum hér í samfélaginu rætt við meistaranema um verkefni þeirra og í dag ætlum við einmitt að gera það. Andrea Hanna Þorsteinsdóttir ætlar síðar í vikunni að verja meistaraverkefni sitt við Háskólann í Reykjavík sem fjallar um vilja fólks til að greiða fyrir kolefnisjöfnun flugferða og mögulegar leiðir til að hafa áhrif á vilja fólks til að gera það af fúsum og frjálsum vilja. |