|
Description:
|
|
Við heimsækjum Hörpu, sem hlaut Svansvottun á dögunum. Ræðum þar við Ástu Ólafsdóttur og Rakel Lárusdóttur um vottunarferlið og hverju það breytir fyrir tónlistar- og ráðstefnuhúsið. Við ætlum að ræða virðismat starfa, en þá er í mjög einfaldri mynd metið hvort er mikilvægara, eða öllu heldur verðmætara: að passa peninga eða börn? Að fljúga flugvélum eða hjúkra fólki? Að vinna í vaktavinnu eða dagvinnu? Þetta er aðferð sem á að beita, og er að einhverju leyti gert, þegar kemur að launasamningum, en samt er launamunur til staðar, sérstaklega þegar kemur að kynjuðum starfsvettvöngum. En þetta er nefnilega líka flókið mál, og það er mikilvægt að reyna að skilja þetta. Helga Björg Ragnarsdóttir framkvæmdastýra Jafnlaunastofu útskýrir þetta fyrir okkur hér á eftir Umhverfispistilinn er svo á sínum stað, Finnur Ricart Andrason hjá ungum umhverfissinnum er með hann þessa vikuna |