Search

Home > Samfélagið > Jarðgerðar líkamsleifar, þrettándahátíð í Eyjum, málfar og síld
Podcast: Samfélagið
Episode:

Jarðgerðar líkamsleifar, þrettándahátíð í Eyjum, málfar og síld

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-01-06 13:00:00
Description: New York ríki í Bandaríkjunum hefur bæst í hóp nokkurra ríkja þar sem hafa leyft jarðgerð eða moltugerð líkamsleifa fólks. Þá er líkamanum komið fyrir á ákveðinn hátt þannig að náttúrulegt niðurbrot á sér stað tiltölulega hratt og eftir verður næringarrík molta sem aðstandendur fá afhenta í lok ferlisins. Við spyrjum: hvernig er þetta ferli og væri þetta hægt hér? Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir mannvistfræðingur er stofnandi Trés lífsins, sem hefur það markmið að setja á fót bálstofu og minningargarð þar sem gróðursett yrðu tré með ösku látinna. Hún ætlar að spjalla við okkur um þetta á eftir. Við ætlum svo að fræðast um þrettándahátíðir - sérstaklega þessa sem er í Vestmannaeyjum, því að öðrum uppákomum ólöstuðum annars staðar á landinu þá er sú sem er haldin í Eyjum, og er í kvöld, algerlega einstök, Í Eyjunni hafa skapast hefðir sem fyrirfinnast hvergi annars staðar og sjálfboðaliðar leggja mikið á sig til að skapa töfrandi stemmningu sem situr eftir í hugum og minningum allra sem það upplifa. Þjóðfræðingurinn Hrefna Díana Viðarsdóttir eyjakona og sérfræðingur og aðdáandi þrettándans kemur til okkar. Málfarsmínútan verður í þrettánda gír og við ræðum svo við Lísu Anne Libungen síldarsérfræðing frá Hafró um þessa skemmtilegu fisktegund í dýraspjallinu svokallaða.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6