|
Description:
|
|
Nýverið lauk ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni - þetta er annars konar dæmi en loftlagsráðstefnan en ekki minna mikilvæg mál undir - vistkerfin okkar, landsvæði, plöntur og dýrategundir deyja út, hverfa, daglega. Stefnt er að því að 30 prósent land og hafsvæða heimsins verið vernduð fyrir 2030. Rætt við Snorra Sigurðsson sem er sviðsstjóri hjá náttúruverndarsviði Náttúrufræðistofnunar Íslands og Þórdísi Björt Sigþórsdóttur, teymisstjóra náttúruverndar, Umhverfisstofnun. Við segjum ykkur líka frá björnum í ameríku en nýjar rannsóknir skýra fjölbreytta litadreifingu svartbjarna, þeir eru ekki bara svartir nefnilega. Málfarsmínútan er svo á sínum stað - og loks kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Hún ætlar að segja okkur frá nýjum rannsóknum sem gera mögulega snemmgreiningu á alzheimers - og það væri þá gert með blóðprufu. |