|
Description:
|
|
Í kuldakastinu sem nú gengur yfir eru eflaust margir bílstjórar sem uppfæra vef Vegagerðarinnar reglulega, þótt færðin hafi reyndar verið ágæt hingað til víðast hvar. En það þarf einhver að sjá um að uppfæra þessi gögn, eftirlitsbílar Vegagerðarinnar keyra um götur og vegi um allt land og mæla veggripið. Við förum á hálkurúntinn með Andra Sigurgeirsson hjá vetrarþjónustu Vegagerðarinnar. Rannsóknir á hafsbotni segja okkur afar mikilvæga hluti um lífríki sjávar, hafstrauma og umhverfisbreytingar - ein þeirra sem sinnir slíkum rannsóknum er Steinunn Hilma Ólafsdóttir hjá Hafrannsóknarstofnun og hún kemur í dýraspjall til okkar í þætti dagsins og segir meðal annars frá rannsóknarleiðangri á grænlandssundi, en hafsbotnin þar getur verið mjög djúpur, þar er fögur fjöll og djúp gil, nýjar og ógreindar og stórfurðulegar tegundir - semsagt algert himnaríki fyrir fróðleiksfúst náttúruvísindafólk. Málfarsmínúta og ruslarabb er svo á sínum stað og í lok þáttar er sjötti þáttur örþáttaseríu Þorgeirs Ólafssonar en í innslagi dgsins ræðir hann við Skúla B. Geirdal verkefnastjóra fjölmiðlanefndar um niðurstöður rannsókna um hvernig fólk aflar sér upplýsinga. |