|
Description:
|
|
Kristín Kröyer sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun: Hvernig er bensínmengaður jarðvegur hreinsaður? Ráðgert er að hreinsa jarðveg á Hofsósi eftir að í ljós kom að bensíntankur neðanjarðar hafði lekið í langan tíma með þeim afleiðingum að hús í nágrenni hans urðu óíbúðarhæf. Það er ekki beinlínis hlaupið að því að laga svona mengun, en búið er að setja upp búnað til þess. Jónas P. Jónasson fiskifræðingur: Við heimsækjum Hafrannsóknastofnun og spjöllum við sérfræðing í atferli og félagslífi humra sem hefur notað hljóðmerki við rannsóknir sínar. Eiríkur Þorsteinsson sérfræðingur hjá Sorpu: ruslarabb um lyf, flokkun og förgun Stefán Gíslason með umhverfispistil þar sem hann rýnir í 6. stöðuskýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, eða, eins og skýrslan hefur verið kölluð: síðasta viðvörunin. |