Search

Home > Samfélagið > Móttaka flóttafólks, markaðir, sjálfbært hús á Spáni og málfar
Podcast: Samfélagið
Episode:

Móttaka flóttafólks, markaðir, sjálfbært hús á Spáni og málfar

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2022-03-07 13:02:00
Description: Nú er talið að um 1,7 milljónir hafi flúið Úkraínu til Evrópu vegna stríðsins og búist er við að minnsta kosti öðrum eins fjölda á næstunni. Langflestir fara yfir landamærin í vestri; til Póllands, Ungverjalands, Moldóvu, Slóvakíu og Rúmeníu. Þaðan halda margir áfram til Evrópu. Formaður flóttamannanefndar sagði um helgina að búast mætti við að hingað gætu komið um 2000 manns á flótta undan stríðinu. Gylfi Þór Þorsteinsson, sem áður var umsjónarmaður sóttvarnarhúsanna hér hefur tekið að sér aðgerðastjórn í sérstöku teymi sem sér um móttöku fólks hér á flótta undan stríðinu. Við ræðum við hann. Það er titringur á mörkuðum víða vegna ástandsins í heimsmálunum og stríðsins í Úkraínu. Verð á orku og hrávöru rýkur upp og hlutabréf lækka. Við ætlum að reyna að átta okkur á stöðunni og tala við Jón Bjarka Bentsson aðalhagfræðing Íslandsbanka. Við Íslendingar tökum því gjarnan sem gefnu að hafa öll ljós kveikt, öll rafmagnstæki í gangi og hleðslu, getað hækkað hitann upp úr öllu valdi og farið í langar sjóðandi heitar sturtur. Við ætlum að heyra af ungri íslenskri konu sem býr í húsi þar sem þetta er ekki gefið - Anna Tara Andrésdóttir flutti nýverið í hús í sveitarsælu Spánar sem hvorki er tengt við rafmagn, hita eða vatn. Það þarf að safna vatni, eldivið og sólargeislum til að keyra allt áfram - og við ætlum að forvitnast um hvernig það gengur. Já og svo er málfarsmínútan á sveimi hjá okkur líka.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6