|
Description:
|
|
Jónas Páll Jónasson, fiskifræðingur: Þau sem fylgjast með fréttum vestra og samfélagsmiðlum hafa mögulega tekið eftir því að það er mikið rætt um krabba. Það er vegna þess að krabbastofnar eru að hrynja, með agalegum afleiðingum fyrir efnahagslíf og fjölda samfélaga, sérstaklega í Alaska. Hvað veldur því að kröbbunum hefur fækkað svona, koma þeir aftur - og eru þetta sömu krabbar og búist er við að finnist hér við Ísland? Við ræðum við sérfræðing um málið. Í gær kom Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV færandi hendi með upptöku úr safninu þar sem Benedikt Gröndal lýsti heimsókn til New York. Meðal þess sem hann sagði frá var heimsókn á veitingastaðinn Iceland restaurant sem var rekinn á Broadway um miðja síðustu öld. Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur ætlar að segja okkur eitt og annað um þann dularfulla stað. Við fáum málfarsráðunaut, Önnu Sigríði Þráinsdóttur til okkar í spjall, til að útskýra fyrir okkur tölur. Háar tölur. |