|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir starfar á Samgöngustofu við skráningar samgönguatvika. Í þessum þætti les hún úr fæðingabók Þórunnar Ástríðar Björnsdóttur ljósmóður og yfirsetukonu í Reykjavík. Þórunn tók alls á móti 4.759 börnum, fyrst 2. janúar 1883 og síðast 11. september 1935.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |