|
Description:
|
|
Ljósmyndir, grasrótar pönk, vopnaburður lögreglu og hugmyndir íslendinga um eigið samfélag verða meðal umfjöllunarefna okkar í dag. Undanfarin ár hefur ljósmyndarinn Kjartan Hreinsson getið sér gott orð á myndrænum samfélagsmiðlum eins og Instagram og Tumblr. Stíll hans er afgerandi en erfitt er að henda reiður á hvað það er sem einkennir ljósmyndir hans. Hann myndar hráan hversdagsleikann. Kjartan verður gestur Lestarinnar á eftir. Við ræðum þjálfun augans, umhverfi flatneskjunnar, hið grámóða, Olís, daufleit fiskikör og bryggjurúnta en einnig einn af áhrifavöldum hans, ljósmyndarann Wolfgang Tillmans sem hefur verið talsvert í fjölmiðlum upp á síðkastið vegna yfirlitssýningar hans sem stendur nú yfir í Tate-safninu í Lundúnum. Dauðyflin er pönksveit úr grasrótinni og hefur verið starfandi frá 2015 og fyrir skemmstu gaf hún út sína aðra plötu, Ofbeldi. Lestin fékk til sín Fannar Örn Karlsson, trommuleikara sveitarinnar og við fengum að vita meira um pönkið, pólitíkina og plötuútgáfuna... |